Skilmálar
Farkas
Miðvangur 87, 220 Hafnarfjörður. Ísland
Netfang: [email protected]
Kt. 410221-1440 | Vsk. 140164
Farkas áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Sérsniðnar vörur
Próförk af hönnun er send innan 7 daga fyrir sérsniðnar vörur. Kaupandi samþykkir próförk áður en að vara er send í prentun ef við á.
Farkas áskilur sér rétt til að biðja um aðrar myndir eða endursendingu á myndum ef þær eru ekki í nægilegri upplausn fyrir hönnunina sem um ræðir.
Afhending vöru
Allar tilbúnar vörur eru afgreiddar innan 1-5 daga eftir pöntun, gæti verið lengra fyrir sérsniðnar vörur. Dagatal getur tekið allt að 3 vikur.
Sé vara ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Farkas ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Farkas til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Ekki er hægt að skila sérsniðnum vörum. Ekki er hægt að skila pöntun nema að kaupandi hafi fengið ranga vöru afhenta. En ef spurningar vakna, þá má alltaf hafa samband.
Verð á vörum
Vinsamlegast athugið að verð getur breyst án fyrirvara.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar munu ekki vera ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.